Hreinsunardagur Spretts miðvikudaginn 22. apríl

Hreinsunardagur Spretts verður haldinn miðvikudaginn 22.apríl kl 17

Hittumst við Samskipahöllina, þar sem við verðum með einhver áhöld og poka. Þú mátt endilega mæta með hanska, verkfæri og góða skapið !

🌱 Tökum höndum saman og hreinsum til og fegrum svæðið okkar fyrir sumarið.

Gámarnir verða staðsettir á heyplaninu Andvaramegin og einnig sunnan við Samskipahöllina.

🌭við munum grilla pylsur á eftir – allir velkomnir!

– Skemmtileg stemning, samvera og eitthvað gott í maga eftir vinnuna.

– Frábært tækifæri fyrir félagsmenn til að hittast og spjalla.

Sprettsfélagar sameinumst um að gera svæðið okkar hreint og snyrtilegt – sjáumst!

Scroll to Top