Keppni í Devold-tölti í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts, fór fram á föstudaginn í Samskipahöllinni.
Það voru Erla Guðný Gylfadóttir og hryssan Fluga frá Garðabæ sem stóðu uppi sem sigurvegarar, þær leiddu eftir forkeppni og gáfu ekkert eftir í úrslitunum. Einkunn Þeirra 6,94.

í öðru sæti voru Darri Gunnarsson og Draumur frá Breiðsstöðum og þriðju Sarah Maagaard Nielsen og Gjálp frá Miðkoti.

B-úrslitin voru ekki síður skemmtileg en þar sigraði Þórdís Sigurðardóttir á hesti sínum Árvaki frá Minni-Borg.

Það var svo lið Fossvéla sem hlaut liðaplattann, fyrir þeirra hönd tóku Erla Guðný, Gunnar Már og Þórdís Sigurðardóttir þátt og náðu öll þrjú inn í úrslit.

Hrafnhildur Jónsdóttir var dregin út í sjálfboðaliðahappadrættinu þetta kvöldið og hlaut 7.500 kr gjafabréf í Lífland. Óhætt að segja að Hrafnhildur sé einn af öflugustu riturum landsins og erum við ánægð að hafa hana með okkur í þessu verkefni. Án öflugra sjálfboðaliða yrði svona deild ekki að veruleika og viljum við nýta tækifærið og þakka öllum sjálfboðaliðum sem taka þátt í þessu Áhugamannadeildarverkefni kærlega fyrir þeirra framlag.
Staðan í einstaklings- og liðakeppninni er spennandi fyrir lokagreinina.
Hér má sjá efstu 10 knapa í einstaklingskeppninni:

Hér má sjá stöðuna í liðakeppninni:

Ljóst er að mjótt er á munum og úrslitin munu ráðast þegar keppni í gæðingaskeiði fer fram á laugardaginn en það er jafn framt loka greinin.
Höfundur: Selma Rut Gestsdóttir
