Kvennareið – Sörlakonur bjóða heim

Það stefnir í mikla gleði á Sörlastöðum þann 30. apríl nk. því þá bjóða Sörlakonur heim!

Matur, gleði og skemmtiatriði!

Sörlkonur bjóða velkomnar til sín konur úr Fáki, Spretti, Herði, Sóta, Brimfaxa og Mána, já og allar þær hestakonur sem vilja koma 18 ára og eldri!

ATH!
-Skráning fer fram með því að senda póst á kv*********@***li.is og með greiðslu kr. 6.350 kr inn á reikning 0544-26-030963, kt. 640269-6509. Greiðsla þarf að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 24. apríl.

– Sörlakonur hittast við Sörlastaði og ríða til móts við konur úr öðrum félögum. Við stefnum á að hóparnir hittist í Gjárétt um kl. 18:40 og þaðan höldum svo saman hressar og kátar á Sörlastaði þar sem verður matur og gleði fram eftir kvöldi.

-Engin skylda að taka þátt í reiðtúrnum og þær konur sem vilja geta mætt beint í mat og skemmtun kl 20:00.

-Allar konur velkomnar í reiðtúrinn þrátt fyrir að vera ekki skráðar á viðburðinn.

Við hlökkum til að sjá ykkur!
Kvennadeild Sörla

Scroll to Top