Sunnudaginn 19.aprílverður boðið upp á námskeið í hestafimleikum með Kathrinu Schmitt, en hún hefur kennt hestafimleika í fjölda mörg ár við góðan orðstír m.a. hjá hestamannafélaginu Þyt. Sprettur hefur fyrr í vetur boðið upp á slíkan dag sem var algjörlega frábær!
Hestafimleikar þjálfa marga eiginleika, m.a. jafnvægi og tilfinningu fyrir hreyfiingum hestsins, í öruggu umhverfi er byggður upp góður og traustur grunnur.
Boðið verður upp á tvo hópa, yngri og eldri. Kennt verður í Húsasmiðjuhöllinni laugardaginn 17.janúar. Yngri hópur milli kl.12:00-14:30 og eldri hópur milli kl.14:30-17:00.
Skemmtilegt og öðruvísi námskeið þar sem kennt er á hesti í hringteymingu og á fjölda mörg æfingatæki sem Kathrin kemur með sér. Til þess að taka þátt í hestafimleikum þarf ekki að taka með sér hest.
Skráning er opin og fer fram á abler.io/shop/hfsprettur. Skráningu lýkur fimmtudaginn 16.apríl.
Verð er 5.000kr.
