Skemmtilegasta mót ársins mun fara fram 11. apríl nk. og hefst fjörið kl 13:30 í Samskipahöllinni!
Við hvetjum unga sem og eldri Sprettara til þess að spreyta sig á sínum gæðing. Það verða riðnir 3 hringir með glas í hendi og sá sem sullar minnst úr sínu glasi vinnur sinn flokk.
Það er valfrjálst að mæta í búning en sérstök verðlaun verða hins vegar veitt fyrir flottasta búninginn svo nú er um að gera að rífa upp saumavélina og skella í flott dress.
Þetta mót er einungis fyrir Sprettara svo nú viljum við sjá Sprettara skora á sína vini í félaginu til þess að taka þátt.
5 flokkar í boði:
Pollar/börn (teymd eða riða sjálf) undir 10 ára aldri
Börn og unglingar 10-17 ára
Kvennaflokkur 18 ára og eldri
Karla flokkur 18 ára og eldri
LULL ER GULL – tilþrifamesta lullið (ekki er riðið með glas i þesssum flokki)
Skráning mun fara fram á tölvupósti, hrafnhildur(hja)sprettur.is og berist eigi síður en 23:59 þann 10 apríl
Grímu og glasafimi Góu er frí fyrir alla skuldlausa Sprettara 🤠
Vinningar eru meðal annars frá Josera búðinni
Hlökkum til að sjá ykkur!
