Hestamannafélagið Sprettur er félag sem bæði er í Garðabæ og Kópavogi. Samkvæmt gildandi verkaskiptingu er snjómokstur gatna og stíga almennt á ábyrgð viðkomandi sveitarfélaga. Forgangsröðun í snjómokstri miðast við mikilvægi samgönguæða, þar sem stofnbrautir hafa forgang fram yfir húsagötur.
Götur að hesthúsum teljast til húsagata og eru því hluti af þjónustu sveitarfélaganna, sem fasteignaeigendur greiða fyrir með fasteignagjöldum. Mokstur reiðstíga er hins vegar ekki í forgangi hjá sveitarfélögunum.
Til að tryggja sem best aðgengi að félagssvæðinu hefur Hestamannafélagið Sprettur því gripið til þess að semja við verktaka um snjómokstur, eftir því sem aðstæður leyfa. Annað sveitarfélagið greiðir verktakanum fyrir þessa þjónustu við Sprett á meðan Sprettur greiðir sjálfur fyrir moksturinn í hinu sveitarfélaginu, sem þýðir að hluti kostnaðar fellur á félagið sjálft.
Markmið Spretts er ávallt að gæta hagsmuna félagsmanna, meðal annars með því að stuðla að sem bestum skilyrðum til þjálfunar og útreiða í nærumhverfi félagsins. Í því samhengi hefur félagið átt í samstarfi við Loftorku um snjómokstur á helstu leiðum, eftir því sem aðstæður og veður leyfa.
Í umhleypingasömum veðrum, líkt og oft eru í marsmánuði, er snjómokstur bæði krefjandi og tímafrekur. Aðstæður geta breyst hratt og götur verið ýmist frosnar, snævi þaktar eða hálar.
Félagið vill jafnframt minna á að Sprettur er rekið í miklu samstarfi við félagsmenn. Allir sem vilja leggja sitt af mörkum eru hvattir til að taka þátt í nefndarstörfum eða styðja félagið með hugmyndum, vinnuframlagi eða öðrum hætti, þar á meðal fjárhagslegum stuðningi.
Að lokum er rétt að taka fram að félagið á ekki snjómoksturstönn á traktorinn sem er í eigu félagsins. Núverandi búnaður gerir því ekki kleift að ryðja félagssvæðið að fullu á eigin vegum.
