Einka- og paratímar!

Reiðkennarinn Róbert Petersen býður upp á einka – og paratíma í Samskipahöllinni. Kennslan er sérsniðin að þörfum og óskum hvers og eins nemanda og hesti.

Kennt verður á þriðjudögum í Samskipahöllinni. Kennsla hefst þriðjudaginn 8.apríl og eru tímasetningar í boði milli kl.16.00-19:30. Kennt er í 40mín í einkatíma og 60mín í paratíma. Kennslu lýkur 29.apríl, samtals 4 skipti.

Verð er 47.500kr fyrir einkatíma.
Verð er 35.000kr fyrir paratíma.

Skráning hefst þriðjudaginn 31.mars kl.12:00 og fer fram á abler.io/shop/hfsprettur

Scroll to Top