Reiðkennarinn Arnar Máni Sigurjónsson býður upp á einkatíma með áherslu á keppni. Námskeiðið er ætlað ungum Spretturum í barna, unglinga og ungmennaflokki sem stefna á keppni á stórmótum, s.s. Landsmót og Íslandsmót. Kennt verður á mánudögum í Samskipahöll, en einnig stöku sinnum í Húsasmiðjuhöll. Þegar fer að vora verður einnig í boði að fara út á völl ef vallaraðstæður og veður leyfir. Hver tími er 30mín. Tímasetningar í boði á milli kl.16:30-21:30. Fjöldi tíma er 9 skipti samtals. Námskeiðið hefst mánudaginn 13.apríl nk.
Skráning opnar miðvikudaginn 1.apríl kl.12:00 og fer fram á abler.io/shop/hfsprettur
Verð er 55.000kr.
