Páskaeggjaleit ungra Sprettara

Páskakanínan verður á ferðinni í hestamannafélaginu Spretti miðvikudaginn 1.apríl og ætlar að fela páskaegg í Magnúsarlundi (litli skógurinn innst við Hamraenda) fyrir unga Sprettara!

Við munum hittast við Samskipahöllina miðvikudaginn 1.apríl kl.17:00. Nauðsynlegt er að skrá sig á svo páskakanínan viti hversu mörg páskaegg hún eigi að fela – beinn hlekkur á skráningu hér: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTU2OTQ=

Skráning er opin og lýkur á miðnætti þriðjudaginn 31.mars.
Ath! Einungis skráðir félagsmenn geta tekið þátt – hægt er að gerast félagsmaður á heimasíðunni, sprettur.is, undir bókanir og beiðnir.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Scroll to Top