Aðalfundur, kosningar og umboð

Aðalfundur Spretts hefst kl. 20:00 á morgun þriðjudag 24. mars.
Húsið opnar kl.19:15 og verður boðið upp á léttan mat fram að fundi.

Á fundinum verða kosningar til stjórnar og geta skuldlausir félagsmenn tekið þátt í kosningu. skv. 5.gr. laga félagsins.
Félagsmaður getur veitt öðrum félagsmanni umboð til þess að greiða atkvæði fyrir sína hönd en umboðsmaður má einungis mæta til fundar samkvæmt umboði eins félagsmanns og verða báðir aðilar að vera skuldlausir við félagið.

Hér má nálgast umboðsform: Umboð

Scroll to Top