Framboð til stjórnar og formanns Spretts

Á komandi aðalfundi þann 24. mars kl 20:00 verður kosið til formanns Spretts og einnig eru 3 sæti í stjórn Spretts til kjörs. Eftirfarandi félagsmenn hafa boðið sig fram til að starfa fyrir félagið okkar, annarsvegar eru þrír sem bjóða sig fram sem formenn Spretts og fimm til setu í stjórn Spretts.

Formaður

  • Halldór Gunnar Victorsson
  • Lilja Sigurðardóttir
  • Vera Rut Ragnarsdóttir

Stjórnarmenn

  • Hildigunnur Guðmundsdóttir
  • Hrafnhildur Blöndahl
  • Nína María Hauksdóttir
  • Ragnheiður Blöndal
  • Sævar Kristjánsson

Kynning á frambjóðendum munu birtast á vefnum eftir klukkan 20:00 þann 19. mars 2026.

Hér má nálgast umboðsform fyrir þá félagsmenn sem eiga ekki heimagengt á fundinn. Bendum þó á 5 grein í lögum félagsins „Umboðsmaður má einungis mæta til fundar samkvæmt umboði eins félagsmanns og er því mest hægt að fara með atkvæði tveggja félagsmanna á fundi í félaginu.“ Umboðsform

Hér kemur auglýsingin um aðalfund sem birtist á sprettur.is 10. febrúar 

Boðað er til aðalfundar hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið 2025 þann 24. mars n.k. kl.20:00. Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli, veislusalnum Samskipahöll, að Hestheimum 14-16, 203 Kópavogi.

Frekari leiðbeiningar um framkvæmd fundarins og fundargögn verða send út síðar.

Dagskrá fundarins er skv. 10.gr. laga félagsins:
1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
4. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða af skoðunarmönnum félagsins.
5. Lagabreytingar, skv. 20. gr.
6. Kosning aðalstjórnar skv. 6. gr.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr.
8. Kosning í nefndir skv. 17. gr.
9. Ákvörðun félagsgjalds.
10. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram.
11. Önnur mál, sem félagið varðar.
Vakin er athygli á að tillögum um lagabreytingar þurfa að berast í síðasta lagi 4. mars n.k. og skal senda á stjórn(hja)sprettur.is.
Skv. 6.gr. laga félagsins skal framboði til stjórnarsetu skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Kjörgengir eru allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem eru í skilum með félgasgjöld.
Kosið verður til formanns Sprett og einnig eru 3 sæti í stjórn Spretts til kjörs.
Stjórn Spretts
Scroll to Top