Lokanir / takmarkanir á umferð um helgina

Kæru félagsmenn, í tengslum við stórtónleika Laufeyjar laugardaginn 14. mars og sunnudaginn 15. mars verða lokanir/ takmarkanir á umferð á svæðinu í kringum hestamannafélagið okkar, á vegum tónleikahaldara, frá kl. 15:30 til miðnættis báða dagana.

Umferð verður stýrt inn á svæðið okkar en félagsmenn þurfa aðeins að gefa upp að förinni sé heitið í hesthúsahverfið.

Samhliða þessu hefur verið óskað eftir því við okkur að kerrur verði fjarlægðar af kerrustæði fyrir helgina. Ef félagsmenn eru í vandræðum með að finna kerrunum sínum stað yfir helgina er mögulegt að nýta svæði í grennd við Samskipahöllina.

 

Scroll to Top