Reiðkennarinn Árný Oddbjörg mun bjóða upp á 4 skipta námskeið. Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum milli kl.15:00-18:30. Fyrsti tími er 18.mars og síðasti tíminn 8.apríl.
Kennt verður í Samskipahöllinni, hólf 3, og einnig í Húsasmiðjuhöll. Kenndir eru 30mín einkatímar.
Verð fyrir fullorðinn er 34.500kr og yngri flokka er 26.500kr.
Skráning opnar kl.12:00 mánudaginn 9.mars. Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur
Paratímar hjá Sigrúnu Sig
Vinsælu námskeiðin hennar Sigrúnar Sigurðardóttur halda áfram. Námskeiðin eru almenn reiðnámskeið fyrir fullorðna sem vilja styrkja leiðtogahlutverk sitt, öðlast betri færni í samskiptum við hestinn sinn og læra að skilja hestinn betur. Þetta námskeið er frábært fyrir einstaklinga sem til dæmis vilja auka kjark og þor, byrja aftur eftir hlé í hestamennsku eða einfaldlega byrja með nýja hesta. Námskeiðið hefst 16.mars, samtals 6 skipti og lýkur námskeiðinu 27.apríl (ekki er kennt annan í páskum 6.apríl). Kennt verður á mánudögum. Í boði eru 2 manna hópar, paratímar. Tímasetningar sem eru í boði eru á milli 15:00 og 18:20. Kennt verður í Samskipahöllinni, hólfi 3.
Verð er 47.500kr á einstakling. Skráning hefst mánudaginn 9.mars kl.12:00 og fer fram á abler.io/shop/hfsprettur
Allar nánari upplýsingar um námskeið gefur Þórdís, th*****@******ur.is
