Pollafimi er námskeið fyrir yngstu knapana þar sem verður lögð áhersla á jafnvægi og ásetu með skemmtilegum æfingum meðan þeir eru hringteymdir. Sniðugt er fyrir 2 litla knapa að sameinast um einn hest. Það sem þarf er hestur, hnakkur eða gjörð með handföngum, snúrumúll eða hringtaumsmúll og vaður/langur taumur. Kennt verður á mánudögum í Húsasmiðjuhöll (16.mars, 23.mars og 30.mars) Tímar í boði milli kl.16-18. Hver tími er í 30mín og eru 4 saman í hóp. Samtals 3 skipti. Fyrsti tíminn er mánudaginn 16.mars. Verð er 5500kr. Hægt er að nýta frístundastyrkinn. Kennari er Hrafnhildur Blöndahl, leiðbeinandi og tamningakona. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00. Hér er beinn hlekkur á skráningu: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQ2NTM=?
Frábæru pollanámskeiðin hjá Hrafnhildi Blöndahl halda áfram laugardaginn 28.mars (ATH ekki kennt laugardaginn 2.apríl). Kennt verður í Húsasmiðjuhöllinni, 40mín hver tími, samtals 6 skipti. Síðasti tíminn laugardaginn 9.maí. Tímasetningar í boði á milli kl.10-13.
Nokkrir hópar í boði:
– byrjendur og minna vanir yngri knapar (knapar sem eru teymdir og fara mest fet en einnig aðeins upp á gang)
– minna vanir eldri knapar (stjórna sjálf, fara mest fet en líka aðeins upp á gang)
– meira vanir allur aldur (ríða sjálf, fet tölt brokk)
– mjög mikið vön (ríða sjálf, fet tölt brokk stökk)
Námskeiðin eru niðurgreidd af Æskulýðsnefnd Spretts, hvetjum við alla polla til að skrá sig. Mikið stuð og mikið gaman! Verð er 5000kr. Hægt er að nýta frístundastyrkinn. https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQ2NTQ=?
