Reiðkennarinn og keppnisknapinn Randi Holaker býður upp á einkatíma á fimmtudögum. Kennt er í 40mín, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll. Námskeiðið hefst 12.mars og lýkur 23.apríl. Ekki er kennt 2.apríl, skírdag.
Randi er afar reynslumikill reiðkennari og dómari, hefur m.a. verið yfirdómari Gæðingalistar í Meistaradeildinni undanfarin ár. Einnig hefur hún látið til sín taka í keppnum og ræktun ásamt því að hafa verið umsjónarmaður Reiðmannsins við LBHI til fjölda ára.
Einkatímar hjá Randi henta breiðum hópi knapa, hvort sem ungum Spretturum eða fullorðnum, hvort sem markmkiðið er að undirbúa sig fyrir keppni eða einfaldlega að vilja læra meira og bæta sig.
Skráning opnar sunnudaginn 8.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
