Móttaka á plasti

Þriðjudaginn 10. mars, milli klukkan 18:00-19:00, verður tekið á móti plasti í gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll.

Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum.

Biðjum við félagsmenn að virða þetta – ef annað plast slæðist með þá eru sektir frá móttökuaðila.

Scroll to Top