Kallað eftir upplýsingum sigurvegara – saga Firmakeppni Spretts

Firmakeppni Spretts hefur um árabil verið fastur liður í félagslífi Spretts. Keppnin hefur notið mikilla vinsælda og fjöldi fyrirtækja og hópa tekið þátt í gegnum tíðina.

Við yfirferð á gögnum félagsins hefur komið í ljós að ekki liggja fyrir fullnægjandi skráningar um sigurvegara firmakeppninnar í öllum flokkum, frá árin 2019. Það hefur gleymst að merkja farandbikara og ekki alltaf verið gerðar fréttir í lok keppna, sem hefur gert það að verkum að erfitt er að rekja söguna með fullri vissu.

Til að tryggja að saga Firmakeppni Spretts sé rétt skráð og varðveitt, óskar Sprettur nú eftir aðstoð félagsmanna og annarra sem kunna að búa yfir upplýsingum um hverjir hafi orðið sigurvegarar í firmakeppninni þau ár sem vantar upp á skráningar.

Í kjölfarið verða farandbikarar keppninnar rétt merktir og uppfærðir, svo tryggt sé að saga þeirra endurspegli árangur með réttum hætti. Stefnt er að því að bikararnir verði rétt merktir fyrir næstu firmakeppni sem fram fer á sumardaginn fyrsta.

Ef þú hefur upplýsingar, minningar, myndir eða gögn sem gætu hjálpað til við að fylla í eyðurnar í sögunni þá væri þakklátt ef þú gætir skrifað athugasemdir hér við þessa færslu eða senda póst á sprettur(hja)sprettur.is.

Saman getum við tryggt að saga Firmakeppni Spretts verði varðveitt af þeirri virðingu sem hún á skilið.

Scroll to Top