Blue Lagoon – fimmgangur

Næsta keppni í Blue Lagoon mótaröðinni fer fram miðvikudaginn 4.mars í Samskipahöllinni. ATH! mótið hefst 17:00! Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í fimmgangi.

Eftirtaldir flokkar verða í boði; Barnaflokkur (10-13ára), tveir flokkar í boði, minna vanir (F3) og meira vanir (F2). Unglingaflokkur (14-17ára), tveir flokkar í boði, minna vanir (F3) og meira vanir (F2). Ungmennaflokkur (18-21árs). Eingöngu einn flokkur í boði, F2.

Hér má nálgast reglur um íþróttakeppni: LÖG og REGLUR – Hestaíþróttadómarafélagið

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.

Knapar telja eingöngu til stiga í einum flokki.

Þeir knapar sem hafa keppt á stórmótum svo sem Landsmóti og- eða Íslandsmóti í sínum flokkum er bent á að skrá sig í flokk fyrir meira vana – en mótshaldarar ítreka að skráning er ætíð á ábyrgð hvers og eins keppanda.

ATH! Það eru fjöldatakmarkanir í öllum flokkum, skráið því sem allra fyrst til að tryggja ykkur pláss. Skráning opnar 23.febrúar og lýkur á miðnætti sunnudaginn 1.mars.
Við bendum á að knapar mega eingöngu skrá 2 hesta. Skráning fer fram á www.sportfengur.com.
Öllum fyrirspurnum og afskráningum skal senda á bl********@******ur.com.

ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur. Skráningargjöld eru 4500kr.

Fjöldatakmarkanir eru eftirfarandi:
Börn minna vanir – 15 pláss
Börn meira vanir – 15 pláss
Unglingar minna vanir – 15 pláss
Unglingar meira vanir – 15 pláss
Ungmenni – 15 pláss

Gaman að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is.
Ráslistar og dagskrá verður birt þriðjudaginn 3.mars á Horseday appinu og einnig á síðu viðburðarins

Veitingasala verður opin í veislusalnum.

Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 1.mars kl. 19:00-21:00.
Best ef börn og unglingar fái að fara fyrri hluta tímans og ungmenni seinni hluta tímans.

Vonumst til að sjá sem flesta miðvikudaginn 4.mars nk. í Samskipahöllinni.

Scroll to Top