Nú er búið að auglýsa aðalfund Spretts sem fram fer 18. mars. Kosið verður til formanns Spretts og einnig eru 3 sæti í stjórn Spretts til kjörs.
Jónína Björk Vilhjálmsdóttir núverandi formaður ætlar ekki að gefa kost á sér áfram sem formaður félagsins en til viðbótar við formann þá hætta þrír stjórnarmenn sem hafa setið í stjórn síðustu tvö árin.
Framundan er uppbygging á félagssvæðinu okkar með bæjarfélögunum og því spennandi verkefni framundan, að taka þátt í mótun og uppbyggingu svæðisins okkar.
Félagar sem hafa áhuga á að starfa í stjórn eru hvattir til að hafa samband á netfangið stjorn(hjá)sprettur.is fyrir fyrir lok dags þann 11. mars. Við lok þess dags verður tilkynnt um hverjir verða í kjöri.
