Þrígangsmót

Fyrirhugað var að halda þrígangsmót í Spretti næstkomandi föstudag, 27. febrúar. Nú fer að líða að móti og stjórn hefur ekki heyrt frá þeim sem ætluðu að taka að sér undirbúning mótsins. Við köllum eftir upplýsingum um undirbúninginn svo hægt sé að auglýsa mótið. Ef ekkert heyrist í lok dags á þriðjudag þarf að fella mótið niður.
Vinsamlegast látið stjórn vita ef þið hafið upplýsingar um skipulagið eða getið tekið að ykkur að skipuleggja mótið, með því að senda tölvupóst á stjorn(hjá)sprettur.is.

 

Scroll to Top