Aðrir vetrarleikar Spretts fara fram næstkomandi sunnudag þann 15. febrúar í Samskipahöllinni. Skráning fer fram í anddyri Reiðhallarinnar milli klukkan 11-12. Vöfflur verða í boði fyrir þátttakendur meðan á skráningu stendur.
Stjórn Spretts auglýsir eftir því hvort það séu ekki áhugasamir félagsmenn sem væru til í að taka að sér umsjón með vetrarleikunum. Þetta er sjálfboðavinna og virkilega skemmtilegt að kynnast störfum fyrir félagið. Þeir sem vilja hjálpa til með framkvæmd eru beðnir um að senda póst á stjorn(hjá)sprettur.is.
Í tilefni af Öskudeginum, sem fram fer í næstu viku, langar okkur að bjóða alla Polla að koma til keppni á Vetrarleikum Spretts í búningi og hita upp fyrir Öskudaginn.
Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðargangur. Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.
Mótið hefst kl 13:00
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
– Pollar (9 ára og yngri) – teymdir Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
– Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
– Börn – meira keppnisvön (10-13 ára)
– Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
– Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
– Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
– Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
– Konur II – minna keppnisvanar
– Karlar II – minna keppnisvanir
– Heldri menn og konur (60 ára +)
– Konur I – meira keppnisvanar
– Karlar I – meira keppnisvanir
– Opinn flokkur (karlar og konur)
Vonumst til að sjá sem flesta!
