Aðalfundur Spretts 18. mars

Boðað er til aðalfundar hestamannafélagsins Spretts fyrir starfsárið 2025 þann 18. mars n.k. kl.20:00. Fundurinn verður haldinn í Arnarfelli, veislusalnum Samskipahöll, að Hestheimum 14-16, 203 Kópavogi.

Frekari leiðbeiningar um framkvæmd fundarins og fundargögn verða send út síðar.

Dagskrá fundarins er skv. 10.gr. laga félagsins:
1. Fundarsetning.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Formaður leggur fram og kynnir skýrslu stjórnar um störf félagsins á síðasta starfsári.
4. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins til samþykktar, skoðaða af skoðunarmönnum félagsins.
5. Lagabreytingar, skv. 20. gr.
6. Kosning aðalstjórnar skv. 6. gr.
7. Kosning tveggja skoðunarmanna og tveggja til vara skv. 6. gr.
8. Kosning í nefndir skv. 17. gr.
9. Ákvörðun félagsgjalds.
10. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár skal lögð fram.
11. Önnur mál, sem félagið varðar.
Vakin er athygli á að tillögum um lagabreytingar þurfa að berast í síðasta lagi 4. mars n.k. og skal senda á stjórn(hja)sprettur.is.
Skv. 6.gr. laga félagsins skal framboði til stjórnarsetu skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund eða þann 11. mars. Kjörgengir eru allir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem eru í skilum með félgasgjöld.
Kosið verður til formanns Sprett og einnig eru 3 sæti í stjórn Spretts til kjörs. Jónína Björk Vilhjálmsdóttir núverandi formaður ætlar ekki að gefa kost á sér áfram sem formaður félagsins. Félagar sem hafa áhuga á að starfa í stjórn eru hvattir til að hafa samband á netfangið stjorn(hjá)sprettur.is fyrir fyrir lok dags þann 11. mars. Við lok þess dags verður tilkynnt um hverjir verða í kjöri.
Stjórn Spretts
Scroll to Top