Blue Lagoon mótaröðin hefst miðvikudaginn 18.febrúar kl.17:30 í Samskipahöllinni. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í fjórgangi.
Eftirtaldir flokkar verða í boði;
- Barnaflokkur (10-13ára), tveir flokkar í boði, minna vanir og meira vanir.
Minna vanir keppa í V5 (léttari fjórgangur) og meira vanir keppa í V2. - Unglingaflokkur (14-17ára), tveir flokkar í boði, minna vanir og meira vanir.
Minna vanir keppa í V5 (léttari fjórgangur) og meira vanir keppa í V2. - Ungmennaflokkur (18-21árs). Eingöngu einn flokkur í boði, V2.
Hér má nálgast reglur um íþróttakeppni: (Í)Reglur_um_íþróttakeppni__270325.pdf
6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu. Knapar telja eingöngu til stiga í einum flokki. Þeir knapar sem hafa keppt á stórmótum svo sem Landsmóti og- eða Íslandsmóti í sínum flokkum er bent á að skrá sig í V2. Við bendum á að knapar mega eingöngu skrá 2 hesta.
ATH! Það eru takmörkuð pláss í hverjum flokkum og ekki verður bætt við fleiri plássum
Sjá hvernig skipting er
- Barnaflokkur V2 = 25
- Barnaflokkur V5 = 20
- Unglingaflokkur V2 = 40
- Unglingaflokkur V5 = 20
- Ungmennaflokkur V2 = 30
Skráning opnar 9 febrúar og fer fram á www.sportfengur.com Skráningu lýkur á miðnætti sunnudaginn 15.febrúar. ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur. Skráningargjöld eru 4500kr.
Gaman er að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is, ókeypis í allan vetur og einnig á rásum Eiðfaxa á myndlykli Símans og myndlykli Vodafone.
Ráslistar og dagskrá verður birt mánudaginn 16.febrúar inná Horseday appinu og einnig á facebook síðu viðburðarins. Veitingasala verður opin í veislusalnum.
Ef einhverjar spurningar vakna þá er tölvupóstfang okkar buelagoo(att)sprettur.is, einnig verður það notað fyrir afskráningar eða breytingar fyrir mótin
Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 15.febrúar milli 18-20
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni miðvikudaginn 18.febrúar nk.
