Fyrstu vetrarleikar Spretts fara fram næstkomandi sunnudag þann 25. janúar í Samskipahöllinni. Skráning fer fram í anddyri Reiðhallarinnar milli klukkan 11-12. Vöfflur verða í boði fyrir þátttakendur meðan á skráningu stendur.
Barna og unglingaráð Spretts sé um skipulag vetrarleikanna að þessu sinni og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðargangur. Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.
Mótið hefst kl 13:00
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
– Pollar (9 ára og yngri) – teymdir Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
– Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
– Börn – meira keppnisvön (10-13 ára)
– Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
– Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
– Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
– Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
– Konur II – minna keppnisvanar
– Karlar II – minna keppnisvanir
– Heldri menn og konur (60 ára +)
– Konur I – meira keppnisvanar
– Karlar I – meira keppnisvanir
– Opinn flokkur (karlar og konur)
Vonumst til að sjá sem flesta!
