Skip to content

Áhugamannamót Íslands og Áhugamannamót Spretts

Dagana 21-23.júlí nk mun Áhugamannamót Íslands fara fram á félagssvæði hmf. Spretts í Garðabæ og Kópavogi. Samkvæmt reglugerð sem samþykkt var á síðasta LH þingi þá mótið þá á það eingöngu að vera í 1. flokki. Því höfum við ákveðið í samráði við LH að á sama tíma verður Áhugamannamót Spretts haldið. Þar verður keppt í 2. og 3. flokki.

Mótin verð „keyrð“ saman í dagskrá en í Sportfeng eru þetta aðskilin mót, biðjum við keppendur um að gefa því gaum við skráningu.

Við hvetjum alla áhugasama keppendur um að taka helgina frá og taka þátt á þessu skemmtilega móti.

Skráning er opin í Sportfeng. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Veglegir vinningar verða í öllum flokkum, reiðkennsla, út að borða, fóðurbætir ofl ofl.

Hér er tengill á viðburðinn. https://fb.me/e/N3TvfHWH

Áhugamannamót Íslands :

Þátttökurétt á Áhugamannamóti Íslands hafa allir sem náð hafa 22 ára aldri á keppnisárinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþóttakeppni á síðastliðnum 5 árum.

Keppt verður í 1.flokki: Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Gæðingaskeið PP1, Fjórgangur V5, Tölt T7 einnig verður keppt í Gæðingakeppni, A og B flokki.

Áhugamannamót Spretts

Keppt verður í 2. flokki : Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Slaktaumatölt T4, Fjórgangur V5, Tölt T7.

Keppt verður í 3. flokki : Tölt T7 og Fjórgangur V5