Breytt áform um uppskeruhátíð Spretts

Kæru félagsmenn,
Vegna dræmrar miðasölu á uppskeruhátíð sem átti að fara fram næsta laugardag hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulaginu. Í stað kvöldskemmtunar verður nú sameiginlegur hádegisviðburður með Hrossaræktarnefnd þar sem Sprettur býður viðstöddum í hádegismat.
Dagskrá laugardagsins:
  • 11:00 – 12:45
    Uppskeruhátíð hrossaræktarnefndar

    • Verðlaunaafhending kynbótahrossa og ræktunarbúa
    • Gunnar Arnarsson hrossaræktandi í Auðsholtshjáleigu heldur fyrirlestur um 35 ára sögu hrossræktar í Auðsholtshjáleigu
  • 12:45 – 13:15
    Hádegisverður – Sprettur býður upp á góða súpu og veitingar
  • 13:15 – 14:00
    Verðlaunaafhending fyrir keppnisárangur á liðnu keppnistímabili og heiðrun nefnda.
Þeir sem voru búnir að kaupa sér miða á laugardagskvöldið fá endurgreitt með  því að senda tölvupóst á gj*******@******ur.is
Við vonumst til að sjá sem flesta í hádeginu í veislusalnum.
Scroll to Top