Tveir ungir Sprettarar hljóta styrk úr afrekssjóði Garðabæjar

Herdís Björg Jóhannsdóttir og Hulda María Sveinbjörnsdóttir hlutu nú á dögunum styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

Þær hafa báðar staðið framarlega á keppnisvellinum síðastliðið keppnistímabil og Herdís tók m.a. þátt á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins nú í sumar.

Við óskum þessum ungu Spretturum innilega til hamingju með styrkinn!

Scroll to Top