SORPA hefur orðið við tilmælum hestamannafélagsins Spretts um að tvískipta gjaldskránni og hefur lækkað verð fyrir farma undir 10 tonnum.
Stjórn SORPU samþykkti á fundi þann 18.6.2025 að fyrir farm af hrossataði undir 10 tonnum verði greitt kr. 12.500.- án Vsk eða kr. 15.500,- með Vsk. Verð fyrir stærri farma en 10 tonn verður kr. 25.000,- án Vsk eða kr. 31.000,- með Vsk sem er óbreytt frá fyrri ákvörðun.
Þetta er ánægjuleg breyting og mjög nærri því sem við fórum fram á. Með þessari verðskrá hefur fengist verð sem er vel ásættanlegt og þökkum við stjórn SORPU fyrir að koma vel til móts við kröfur okkar.