ATH! Lokanir á reiðstígum laugardaginn 17.maí!
Stjörnuhlaupið fer fram laugardaginn 17.maí og verður því ákveðnum reiðleiðum lokað þann daginn milli kl.10-13 þann dag.
Meðfylgjandi er kort af leiðinni bæði á mynd og myndbandi.
Hér er leiðin útskýrð frá mótshöldurum:
– Hlaupið byrjar í Miðgarði, farið inni í skóginn í Smalaholti og áfram yfir Vatnsendaveginn fyrir neðan hesthúsabyggð Spretts (Andvara).
– Þaðan farið upp eftir á göngustígum í hlíðinni fyrir ofan hesthúsin og upp á melann á Sandahlíð. Niður hinum megin og þá komum við fyrstu lokunum (sem eru 2 neon grænu merkingar ofarlega til hægri).
– Neon græna merkinging fyrir neðan fyrstu 2 neo merkinn á mynd, er hægri beygjan í átt að skátaheimilinu þar sem hestagerðið er á leiðinni. Það þarf að loka þeim stíg tímabundið.
-Blái punkturinn á myndinni er nýja skátaheimilið. Þar þurfum við loka fyrir hestaumferð ef þeir fara leiðina meðfram Grunnuvötnum og vilja fara inn á línuveginn sem liggur suður fyrir Vífilsstaðahlíð.
Allir hlauparar fara réttsælis á myndinni.
Myndband af hlaupaleiðinni: