Æfinga kynbótasýning fyrir alla!

Fimmtudaginn 22. og 23.maí nk ætlar hestamannafélagið Sprettur, í góðu samstarfi við RML, að bjóða upp á æfinga-kynbótasýningu. Ákveðið hefur verið að opna sýninguna fyrir allan aldur.

Slíkt hefur ekki verið í boði hérlendis áður en það getur reynst knöpum erfitt skref að stíga að mæta til dóms á kynbótabrautinni. Því höfum við ákveðið að setja á laggirnar æfinga-kynbótasýningu sem verður útfærð nákvæmlega eins og alvöru sýning nema tölur verða ekki skráðar í gagnagrunn WorldFengs heldur fá þátttakendur umsögn frá kynbótadómurum og einkunnir afhentar á blaði.

Fimmtudaginn 22.maí munu fara fram fordómar, s.s. sköpulags- og hæfileikadómur, og föstudaginn 23.maí fer fram yfirlitssýning. Mælingar og sköpulagsdómar fara fram í Samskipahöll og hæfileikadómur á kynbótabraut Spretts.

Starfsmenn og kynbótadómarar RML starfa á sýningunni.

Miðað er við þrjú dómaholl, 6-7 hross í hverju holli. Dómarar ræða við hvern sýnanda að lokinni hverri sýningu og gefa umsagnir og einkunnir.
Einungis eru 20 laus pláss á sýninguna. Skráningu lýkur þegar plássin fyllast eða í síðasta lagi á miðnætti mánudaginn 12.maí.

Eingöngu er boðið uppá skráningu í fullnaðardóm.
Verð er 31.500kr.
Skráning er opin og fer fram á abler.io
Hér er beinn hlekkur á skráninguna:
https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mzk3MjE=

Mynd fengin að láni frá RML

Scroll to Top