Keppnisnámskeið fyrir yngri flokka með Arnari Mána

Reiðkennarinn Arnar Máni býður upp á einkatíma með áherslu á keppni á mánudögum í Samskipahöll, einnig verður möguleiki á að fara út á völl ef vallaraðstæður og veður leyfir. Hver tími er 30mín. Tímasetningar í boði á milli kl.16:30-21:30. Fjöldi tíma er 5 skipti samtals. Námkskeiðið hefst mánudaginn 28.apríl nk.

Einkatímarnir eru ætlaðir knöpum í yngri flokkum, barna-, unglinga- og ungmennaflokki.

Skráning opnar fimmtudaginn 24.apríl kl.12:00 og fer fram á abler.io

Verð er 28.500kr.

Scroll to Top