Dymbilvikusýning Spretts 16.apríl

Hin árlega sýning hestamannafélagsins Spretts, Dymbilvikusýningin, fer fram 16.apríl nk. í Samskipahöllinni.

Það stefnir allt í stórskemmtilega sýningu en eins og undanfarin ár verður haldin létt keppni milli nágranna hestamannafélaganna um flottustu ræktunarhestana.

Ungir Sprettarar ætla að mæta á svæðið og halda uppi stuðinu, Íþróttafólk Spretts, Töltgrúppa Spretts, kynbótahross, ræktunarbú, létt grínatriði o.m.fl. Sýningaratriði verða kynnt betur þegar nær dregur.
Húsið opnar kl 18:00
Sýningin hefst kl 20:00
Hægt verður að versla léttar veitingar og drykki.

Miðaverð inn á sýninguna 2000kr, selt við innganginn.

Hlökkum til að sjá ykkur!
Scroll to Top