Fimmtudaginn 17. apríl, Skírdag , milli klukkan 11:00-12:00 verður tekið á móti plasti í nýjum gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll.
Eingöngu verður tekið á móti heyrúlluplasti – ekki plasti utan af spæni, heynetum eða öðru rusli. Rúlluplastið má ekki vera í plastpokum.
Biðjum við félagsmenn að virða þetta – ef annað plast slæðist með þá eru sektir frá móttökuaðila.