Fyrstu vetrarleikar Spretts 2021

Fyrstu vetrarleikar Spretts fara fram sunnudaginn 14. febrúar kl.13:00 og verða þeir haldir úti.

Skráning fer fram í gegnum meðfylgjandi skjal. Skráningafrestur er til kl 23:00 laugardagskvöldið 13.feb.

Ef fólk lendir í vandræðum með skráningu vinsamlega sendið póst á mo*******@sp********.is 

https://docs.google.com/spreadsheets/d/1OpK-zWAP3328yp-OHhgqtbSGZZ1f0aLswXJEnh-T9vI/edit?fbclid=IwAR0ymnFUY-eRheM5xQAoN_71tej8emVhdkIyV1LTG10w5cTxgrDc-prZ8OA#gid=798943098

Þátttakendur eru beðnir um að millifæra inn á Sprett á reiking 318-26-010942, Kt 590712-0940 og senda kvittun á mo*******@sp********.is

Keppt verður í T7

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.

Vonumst til að sjá sem flesta sunnudaginn 14. febrúar.

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn (10-13 ára)
Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)
Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka.
Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.
Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 10 stig
2.sæti gefur 8 stig
3.sæti gefur 6 stig
4.sæti gefur 4 stig
5.sæti gefur 2 stig
1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt

frumherji
Scroll to Top