Næsta mót í Equsana deildinni 2020 er fimmgangur

Takið frá fimmtudaginn 20 febrúar og mætið í Samskipahöllina í Spretti því næsta

mót í Equsana deildinni 2020 er fimmgangur.

Fimmgangur er eitt mest spennandi mótið í Equsana mótaröðinni. Þessi grein er eins

og flestir vita mjög krefjandi og hafa knaparnir okkar lagt nótt við dag við

undirbúninginn. Spennan er mikil enda ríður á að klárinn liggi í höllinni.

Í fyrra voru það Guðrún Margrét Valsteinsdóttir og Eskill frá Lindarbæ sem stóðu uppi

sem sigurvegarar. 

Veislan byrjar kl. 19:00 og húsið opnar kl. equsana deild mynd17:30. Snillingarnir okkar í eldhúsi Spretts

munu reiða fram dýrindis mat að venju.

Vð hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í

Sprettshöllina, njóta góðra veitinga og horfa á spennandi keppni.

Aðgangur er frír.

 

Ráslistar verða birtir á miðvikudag.

GMV
Scroll to Top