Blue Lagoon mótaröðin 2020 – skráning á fyrsta mótið

 

Eins og undanfarin ár býður Hestamannafélagið Sprettur, í samstarfi við Blue Lagoon, upp á mótaröð í Samskipahöllinni fyrir knapa í yngri flokkum.

Að þessu sinni verða mótin þrjú en keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti.

Dagsetningar mótanna eru eftirfarandi:

7. febrúar – fjórgangur

21. febrúar – fimmgangur

3. apríl – tölt

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum

mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu. Mótið er opið öllum knöpum í

yngri flokkum.

Skráning er hafin á fyrsta mótið sem er fjórgangur.

Mótið verður haldið föstudaginn 7. febrúar en keppt verður í fjórgangi í barna-, unglinga- og ungmennaflokki og þrígangi í

pollaflokki. Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudaginn 4.febrúar.

Eftirfarandi flokkar og greinar eru í boði:

Pollaflokkur fyrir polla sem ríða sjálfir (6 – 9 ára) – þrígangur

Barnaflokkur minna vanir (10 – 13 ára) – fjóragangur V5

Barnaflokkur meira vanir (10 – 13 ára) – fjórgangur V2

Unglingaflokkur (14 – 17 ára) – fjórgangur V2

Ungmennaflokkur (18 – 21 árs) – fjórgangur V2

Í þrígangi sýna keppendur hægt til milliferðar tölt, hægt til milliferðar brokk og fet. Í fjórgangi V5 sýna keppendur frjálsa ferð á tölti, hægt til milliferðar brokk, fet og hægt til milliferðar stökk. Í fjórgangi V2

sýna keppendur hægt tölt, hægt til milliferðar brokk, fet, hægt til milliferðar stökk og yfirferðartölt.

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng en skráningargjöld eru eftirfarandi:

2500 kr. fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokk

1000 kr. fyrir pollaflokk

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni föstudaginn 7. febrúar.

 

-Mótanefnd Spretts

bláa lónið