Þjálfun og keppni fyrir börn, unglinga og ungmenni

Námskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni, hvort sem þau vilja bæta sig og sinn hest til útreiða eða stefna á keppni. Miðað er við 10 ára til 21 árs á árinu.

Kennt verður á mánudögum og þriðjudögum (val um hvorn daginn) í Samskipahöllinni. Kennt einu sinni í viku tveir saman í tíma fyrst um sinn, þegar líður nær mótum úti á velli færist kennsla fyrir þau sem stefna á keppni út á keppnisvöll.  Kennsla fyrir þau sem stefna á þjálfun á sínum reiðhesti færist líka út.

Kennarar verða Sigurður V. Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir, þau munu fylgja þeim eftir sem stefna á úrtöku fyrir Landsmót.

Námskeiðið hefst 13.janúar og er skráning opin í gegnum Sportfeng og einnig í gegnum https://umsk.felog.is/ fyrir þau sem vilja nýta frístundastyrki sína.

Verð fyrir hvern þátttakenda er 35.000kr

 

Fræðslunefnd Spretts

Edda og Siggi
Scroll to Top