Einstakt tækifæri fyrir unglinga – Hæfileikamótun LH

Með nýju fyrirkomulagi í afreksmálum LH hefur verið ákveðið að setja af stað verkefni fyrir unga og metnaðarfulla knapa, það kallast Hæfileikamótun LH og fer af stað veturinn 2020.

Hæfileikamótun LH samanstendur af 6 hópum sem staðsettir eru í hverjum landshluta fyrir sig.

Fjöldi knapa í hóp er 8. Gjaldgengir í hópinn eru unglingar á aldrinum 14-17 ára (unglingaflokkur).
Einstakt tækifæri fyrir unga metnaðarafulla knapa að undirbúa sig með markvissri kennslu til að takast á við verkefni bæði hérlendis og á erlendum vettvangi.

Staðsetning hópa:
• Höfuðborgarsvæði (8 manna hópur)

• Höfuðborgarsvæði (8 manna hópur)

• Suðurland (8 manna hópur)

• Norðurland (8 manna hópur)

• Vesturland (8 manna hópur)

• Austurland (8 manna hópur)

Viðburðir og fyrirkomulag:

• Janúar – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti)

• Mars – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti)

• April/mai – helgarnámskeið (laugard/sunnud-einstaklingskennsla með hesti)

• Sept – sýnikennsla (án hests)

• Fyrirlestur með fagteymi ÍSÍ (án hests)

Kostnaður knapa er 100.000kr fyrir árið.

Knapar sem eru gjaldgengir í hópinn senda umsókn til LH.
Í umsókn skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:

• Nafn, aldur og félag
• Lýsing á keppnisárangri undanfarin 2 ár

• Námskeið sem knapi hefur tekið

• Video (max 5-6 min) þar sem knapi sýnir gangtegundir:
o Fet

o Brokk

o Hægt stökk, hraðinn aukinn í hratt stökk og síðan hægt niður á fet

o Hægt tölt, hraðinn aukinn yfir í hratt tölt og síðan hægt niður á fet

o Frjálst er að sýna fimiæfingar

Verkefnastjóri er Vilfríður F. Sæþórsdóttir. Allar umsóknir berist á netfangið vi*******@lh******.is.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar í gegnum sama netfang.

Umsóknarfrestur er til miðnættis þriðjudaginn 26.nóvember 2019.
Hópar verða tilkynntir um miðjan desember.

Verðlaun Spretts
Scroll to Top