Áhugamannadeild Spretts, Equsana deildin 2019

Áhugamannadeild Spretts, Equsana deildin 2019, hefst 7 febrúar n.k. og þar með hefst fimmta keppnisárið í þessari frábæru mótaröð.

Mótaröðin verður sú allra stærsta og sterkasta til þessa. Sextán lið mæta til keppni í vetur með samtals áttatíu knapa skráða. Þrír knapar úr hverju liði keppa í hverri grein fyrir liðið sitt og það eru því fjörtíu og átta knapar og hestar sem mæta í hvert mót.

Deildin hefst með keppni í fjórgang fimmtudaginn 7 febrúar kl. 19:00. Sem fyrr er aðgangur ókeypis og fólk hvatt til að mæta í Sprettshöllina til að njóta flottra sýninga og góðra veitinga.

Að venju verður hægt að mæta snemma og njóta góðra veitinga fyrir og á meðan keppni stendur.

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

Fimmtudagur 7 febrúar – Fjórgangur

Fimmtudagur 21 febrúar – Fimmgangur

Fimmtudagur 7 mars – Slaktaumatölt og flugskeið í gegnum höllina

Fimmtudagur 21 mars – Tölt – Lokamótið

Kynning liða hefst í vikunni en töluverðar breytingar hafa verið á liðum, knapabreytingar milli liða og svo bætast tvö ný lið í hópinn sem dreginn voru út í byrjun september.

Hlökkum til að sjá ykkur í vetur

equsana deild mynd
Scroll to Top