OZ er með tilrauna útsendingu frá Gæðingamóti Spretts og sýnir beint alla helgina.
Um er að ræða mannlausar upptökuvélar sem eru á svæðinu en þeim er stjórnað af starfsmönnum á skrifstofu OZ í Reykjavík.
Útsendingin er aðgengileg á www.oz.com/sprettur
Við hvetjum fólk til að fylgjast með Gæðingamóti Spretts sem er jafnframt úrtaka félagsins fyrir Landsmót.