Skráning hafin á þriðja og síðasta mótið í Blue Lagoon mótaröð Spretts, Mar Wear Tölt.
Mótið verður haldið sunnudaginn 6. maí í Samskipahöllinni í Spretti og verða eftirfarandi flokkar í boði:
Pollaflokkur (6-9 ára sem ríða sjálfir)
Barnaflokkur minna vanir (10-13 ára)
Barnaflokkur meira vanir (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)
Ungmennaflokkur (18-21 árs)
Fimm skráningar þarf í hvern flokk svo að boðið sé upp á hann. Mótanefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.
Keppendur sýna:
Pollaflokkur – hægt tölt og frjáls hraði, ekki snúið við.
Í pollaflokki verður sýnd einkunn eftir hvert atriði fyrir hvern knapa, til upplýsingar, en ekki raðað í sæti. Dómarar velja glæsilegasta parið í pollum.
Barnaflokkur minna vön – T7 (hægt tölt, snúið við, frjáls hraði)
Barnaflokkur meira vön – T3 (hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og greitt tölt)
Unglingaflokkur – T3
Ungmennaflokkur – T3
Skráningin fer fram í gengum Sportfeng og eru skráningargjöld eftirfarandi:
2000 kr. fyrir barna- unglinga- og ungmennflokk
1000 kr. fyrir pollaflokk
Skráning er opin frá 30. apríl til miðnættis 4. maí.
Mikilvægt er að senda kvittun fyrir greiðslu á netfangið sk******@********ar.is