Karlatölt Spretts – skráning hafin!

Skráning er hafin á hið árlega og sívinsæla Karlatölt Spretts sem fram fer í Samskipahöllinni föstudaginn 13. apríl nk. Boðið verður upp á keppni í þremur flokkum:

T3 Opinn flokkur 1.flokkur – opinn öllum sem vilja. Gert er ráð fyrir að reynslumiklir knapar skrái sig í þennan flokk.

T3 Opinn flokkur 2.flokkur – ætlaður þeim sem eru töluvert vanir í keppni.
T7 Opinn flokkur 2.flokkur Minna vanir – ætlaður þeim sem hafa litla reynslu í keppni.

Skráning fer fram á sportfengur.com og lýkur á miðnætti 7. apríl nk. Skráningargjald er kr. 5.000.

Mótið er opið og eru karlar hvattir til að vera með á þessu létta og skemmtilega móti.

Scroll to Top