Hestanuddari/sjúkraþjálfari

Kæru Sprettarar

Auður starfar sem hestanuddari/hestameðferðaraðili í Hestanudd og heilsu.

Markmið hennar er að stuðla að almennri heilsueflingu fyrir hross á öllum aldri og öllum stigum þjálfunar.
Auður er menntuð frá Nordisk heste- og hundeterapiskolen í Noregi sem er einn af betri skólum í Noregi í sjúkraþjálfun og endurhæfingu fyrir hesta.

Hvað er hestanuddari/sjúkraþjálfari?

Hestanuddari metur og meðhöndlar hesta sem orðið hafa fyrir skaða eða meiðslum eða sýna merki um einhvers konar vandamál í hreyfingum eða frammistöðu.

Hestanudd eða hestameðferð sameinar hreyfigreiningu og þekkingu á líffæra- og stoðkerfi hestsins til að koma auga á þau vandamál sem geta verið til staðar og getu til að finna hugsanlegar lausnir og meðferðir.

Auður hefur fengið víðtæka þjálfun í að greina og meta meiðsli eða vandamál, sérstaklega í mjúkvefjum (t.d. vöðvum) og stoðkerfinu, sem geta svo leitt til heltis eða annarra vandamála í hreyfigetu hestsins.

Með því að nota fjölbreyttar aðferðir og geta gert alhliða mat á ástandi hestsins er veitt fagmannleg þjónusta við bæði hest og eiganda til að veita hestinum bestu möguleika á að vera í sínu besta líkamlega ástandi og framkvæma það sem til er af honum ætlast.

Auður notar ýmsar aðferðir í sinni meðhöndlun, byggð á þörfum hvers og eins. Meðal þess sem boðið er upp á: almennt nudd, sjúkranudd, hnykkingar, teygjur, þrýstipunktameðferð (trigger point therapy, sjúkraþjálfun, endurhæfingu og acupressure. Einnig er hægt að fá fræðslu og ráðgjöf ef þess þarf.

Verð:
Fyrsti meðferðartími (90 mín) : 7.000 kr
Eftirmeðferð (60 mín) : 6.000 kr.

Tímabókanir: 8885052 / he***************@***il.com eða facebook: https://www.facebook.com/hestanuddogheilsa/

Scroll to Top