Kynning á síðustu 4 liðum í Equsana deildinni 2018

Seinustu liðin sem við kynnum til leiks í Equsana deildinni 2018 eru lið Vagnar og Þjónustu, Ölvisholts, Stjörnublikks og Öðlinganna.

Samtals keppa 16 lið í mótaröð ársins og þar má sjá mörg lið sem hafa verið með frá upphafi. Reglur deildarinnar eru þannig að í lok mótaraðarinnar detta þrjú stiga lægstu liðin út og síðan eru dregin inn ný lið fyrir næstu mótaröð. Í ár voru dregin út fjögur ný lið og sem kallast þá nýliðarnir í ár. Þau lið eru Sindrastaðir og Öðlingarnir sem koma glæný inn og síðan Snapps Kapp og Poulsen sem duttu út í fyrran en sóttu um aftur og voru dreginn út.

Við erum byrjuð að telja niður og fyrsta mót hefst fimmtudaginn 8 febrúar kl. 19:00 með spennandi keppni í fjórgangi.

Ráslistar verða birtir á þriðjudaginn 6 febrúar.


Scroll to Top