Ráslistar fyrir Equsana fjórganginn í Gluggar og Gler deildinni 2017

Jæja það er að koma að þessu. Fyrsta keppnin í Gluggar og Gler deildinni – Áhugamannadeild Spretts hefst fimmtudaginn 16 febrúar kl. 19:00.

Í fyrra sigruðu fjórganginn þau Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Fífill frá Feti, þau mæta nú aftur í ár og ætla sér örugglega að verja titilinn. Parið sem vann í fyrstu mótaröðinni 2015 mætir einnig til leiks en það eru Hrafnhildur Jónsdóttir og Krafur frá Keldudal. Birgitta Dröfn Kristinsdóttir sem lenti í þriðja sæti í fyrra er mætt aftur en nú með Barða frá Laugabökkum. Þetta verður hrikalega spennandi keppni þar sem mikið er af flottum knöpum og hestum.

Sjáumst í Sprettshöllinni á morgun – frítt er inn fyrir áhorfendur meðan húsrúm leyfir.

Styrktarðili fjórgangins er Equsana og þeir verða með skemmtilega vörukynningu á staðnum.

Við minnum á glæsilegt hlaðborð og veitingar á góðu verði þannig að það er um að gera að mæta fyrr, njóta veitinga og horfa svo á æsispennandi keppni.

Nr Hópur Hönd Knapi Hestur Lið

1 1 H Leifur Sigurvin Helgason Eldey frá Skálatjörn Austurkot-Geirland

2 1 H Sigurður Grétar Halldórsson Hugur frá Eystri-Hól Team Kaldi bar

3 1 H Guðmundur Jónsson Máttur frá Miðhúsum Poulsen

4 2 V Rúrik Hreinsson Flaumur frá Leirulæk Einhamar Seafood/Ísféll

5 2 V Guðrún Margrét Valsteinsdóttir Óskar Þór frá Hvítárholti Garðatorg & ALP/GÁK

6 2 V Arnhildur Halldórsdóttir Þytur frá Stykkishólmi Ölvisholt Brugghús

7 3 V Davíð Matthíasson Glaður frá Mykjunesi 2 Barki

8 3 V Sigurður Sigurðsson Bruni frá Varmá Toyota Selfossi

9 3 V Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg Tign frá Vöðlum Vagnar og Þjónusta

10 4 V Hafdís Arna Sigurðardóttir Sólon frá Lækjarbakka Snaps/Kapp

11 4 V Sigrún Sæmundsen Íslendingur frá Dalvík Bláa Lónið

12 4 V Ástríður Magnúsdóttir Júpiter frá Garðakoti Austurkot-Geirland

13 5 V Rúnar Bragason Penni frá Sólheimum Toyota Selfossi

14 5 V Katrín Sigurðardóttir Von frá Meiri-Tungu 3 Vagnar og Þjónusta

15 5 V Þorvarður Friðbjörnsson Þjóðólfur frá Þjóðólfshaga 1 Hringdu/Exporthestar

16 6 V Gunnhildur Sveinbjarnardó Skjálfti frá Langholti Barki

17 6 V Gunnar Sturluson Hrókur frá Flugumýri II Poulsen

18 6 V Ingi Guðmundsson Sævar frá Ytri-Skógum Team Kaldi bar

19 7 V Glódís Helgadóttir Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Kæling

20 7 V Gunnar Tryggvason Grettir frá Brimilsvöllum Garðatorg & ALP/GÁK

21 7 V Vilborg Smáradóttir Grunnur frá Hólavatni Vagnar og Þjónusta

22 8 V Kristín Ingólfsdóttir Svalur frá Hofi á Höfðaströnd Ölvisholt Brugghús

23 8 V Birgitta Dröfn Kristinsdóttir Barði frá Laugarbökkum Barki

24 8 V Sigurbjörn Viktorsson Baldur frá Akureyri Heimahagi

25 9 H Kristinn Már Sveinsson Ósvör frá Reykjum Poulsen

26 9 H Ástey Gyða Gunnarsdóttir Stjarna frá Ketilshúsahaga Snaps/Kapp

27 9 H Jón Gísli Þorkelsson Kría frá Kópavogi Bláa Lónið

28 10 V Rósa Valdimarsdóttir Íkon frá Hákoti Mustad

29 10 V Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Fífill frá Feti Kæling

30 10 V Lára Jóhannsdóttir Gormur frá Herríðarhóli Heimahagi

31 11 V Elín Deborah Wyszomirski Faxi frá Hólkoti Ölvisholt Brugghús

32 11 V Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir Hafrót frá Ásbrú Einhamar Seafood/Ísféll

33 11 V Sigurjón Gylfason Ás frá Traðarlandi Bláa Lónið

34 12 H Saga Steinþórsdóttir Mói frá Álfhólum Mustad

35 12 H Hannes Brynjar Sigurgeirson Fleygur frá Garðakoti Austurkot-Geirland

36 12 H Jón Ó Guðmundsson Þruma frá Hofsstöðum, Garðabæ Hringdu/Exporthestar

37 13 V Þórunn Eggertsdóttir Náma frá Klömbrum Toyota Selfossi

38 13 V Edda Hrund Hinriksdóttir Kolfinnur frá Efri-Gegnishólum Kæling

39 13 V Aníta Lára Ólafsdóttir Greifinn frá Runnum Garðatorg & ALP/GÁK

40 14 H Hrafnhildur Jóhannesdóttir Jökull frá Hofsstöðum Einhamar Seafood/Ísféll

41 14 H Óskar Pétursson Æska frá Akureyri Team Kaldi bar

42 15 H Hafdís Svava Níelsdóttir Hvöt frá Árbæ Snaps/Kapp

43 15 H Gylfi Freyr Albertsson Kolbeinn frá Hæli Hringdu/Exporthestar

44 16 V Hrafnhildur Jónsdóttir Kraftur frá Keldudal Mustad

45 16 V Halldór Gunnar Victorsson Von frá Bjarnanesi Heimahagi

gluggar og glerSprettur
Scroll to Top