Ungt fólk og lýðræði 2015

Ráðstefnan, Ungt fólk og lýðræði 2015 fer fram dagana 25.-27. mars á Hótel Stykkishólmi. Yfirskrift ráðstefnunnar er; Margur verður að aurum api – réttindi og skyldur ungs fólks á vinnumarkaði. Ungmennaráð UMFÍ á veg og vanda að ráðstefnunni og hefur þegar hafið undirbúning að fullum krafti. 

Það er einlæg ósk ráðsins að öll sveitarfélög á landinu og félagasamtök sem hafa ungmennaráð á sínum vegum sendi fulltrúa til ráðstefnunnar.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna berast í janúar.

Fyrir hönd Ungmennaráðs UMFÍ

Sabína Steinunn Halldórsdóttir

Landsfulltrúi

umfí
Scroll to Top