Metamótið í beinni á isibless.is

Nú hafa skipuleggjendur Metamótsins landað samningi við Isibless sem mun sjá um útsendingu á vefnum frá mótinu. Skráning er í fullum gangi og stendur til mánudagsins 1. september kl 23:59.

Mótið verður haldið 5-7 september og keppt verður í A- og B-flokki, opnum flokki og áhugamannaflokki, tölti T3 Opnum flokki, 100m ljósaskeiði, 150m skeiði, 250m skeiði, 100m rökkurbrokki og nýjustu greininni 250m stökki.

Forstjóratöltið verður á sínum stað, en þar keppa styrktaraðilar mótsins sín á milli.

Skráningin fer fram í gegnum Sportfeng, en hægt er að smella hér til að komast inn í skráningarhaminn. Skráning í rökkurbrokk er undir liðnum „annað“. Peningaverðlaun verða í efstu sætum í kappreiðum!

Ef spurningar koma upp er varða skráningu má senda póst á th**@in***.is.

Scroll to Top