Hestar fyrir FEIF Youth Cup

Að beiðni æskulýðsnefndar LH sem heldur FEIF Youth Cup á Hólum 11. -20. júlí í sumar, birtum við þetta bréf þar sem auglýst er eftir hestum til láns/leigu fyrir þennan viðburð.

Ágæti hesteigandi,

Nú í sumar mun Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga í samstarfi við FEIF alþjóðasamtök íslenska hestsins, halda hér á landi æskulýðsmót fyrir unglinga á aldrinum 14 – 17 ára. Mótið er haldið að Hólum í Hjaltadal dagana 11. – 20. júlí næstkomandi. Mótið sækja unglingar frá öllum aðildarlöndum FEIF og er haldið annað hvert ár í einhverju aðildarlandanna. Alls hafa 78 unglingar þátttökurétt og keppa þau sem koma erlendis frá á lánshestum.

Fyrstu tvo dagana eru keppendur að kynnast hestunum, síðan njóta þau tilsagnar þekktra þjálfara í þrjá daga, þá er farið í dagsferð um Skagafjörðinn og síðustu þrjá dagana keppa þau á hestunum, bæði í einstaklings og liðakeppni.

Okkur í æskulýðsnefndinni er mjög í mun að mótið takist sem allra best og höfum lagt vinnu í það að fá til liðs við okkur þekkta einstaklinga úr hestaheiminum til að þjálfa keppendur.

Með þessu bréfi viljum við athuga hvort þú búir svo vel að geta lánað/leigt okkur hest til að hafa á mótinu fyrir erlendu gestina okkar. Þátttakendurnir greiða að hámarki 150 € í leigu fyrir hestinn.

Hesturinn þarf að vera heilbrigður, örmerktur og skráður í Worldfeng. Þeir hestar sem henta í verkefnið þurfa að vera hreingengir, hlýðnir og tiltölulega auðveldir. Keppt er í hringvallagreinum, tölti, fjór- og fimmgangi ásamt skeiði, þrautabraut, víðavangshlaupi, fimi og fánakappreið. Hestarnir þurfa ekki að vera hágengir en að sjálfsögðu hjálpar það.

Þeir hesteigendur sem hafa hesta í verkefnið eru beðnir að senda upplýsingar á netfangið **@lh******.is með smá lýsingu á hestinum og ISnúmer hans fyrir 30. maí nk. Við munum svo hafa samband með frekari upplýsingum.
Einnig er hægt að hafa samband við nefndarmenn æskulýðsnefndar LH en nöfn þeirra eru á heimasíðu LH www.lhhestar.is undir Æskan.

Með von um jákvæð viðbrögð.

Virðingarfyllst,
f.h æskulýðsnefndar LH
Helga B. Helgadóttir
formaður

YC logo
Scroll to Top