Annaðkvöld, fimmtudagskvöldið 3. apríl verða Hestadagar settir í Hörpu kl. 19. Riðið verður frá Sólfarinu að Hörpunni. Ungmenni frá öllum hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu verða í reiðinni með fána félaga sinna. Okkur vantar 2 ungmenni í viðbót frá Spretti til þess að taka þátt í þessari reið með fána Spretts. Þeir sem vilja vera með hafi samband við Sigurlaugu í s. 8454036 eða senda tölvupóst á si*******@sp********.is