Nú um helgina verður 65. landsþing Landssambands hestamannafélaga (LH) haldið í Hveragerði og er hestamannafélagið Ljúfur er gestgjafi þingsins að þessu sinni.
Á landsþingi LH koma saman fulltrúar hestamannafélaga víðs vegar af landinu til að ræða málefni sem snerta hestamennskuna okkar. Þingið er mikilvægur vettvangur til að skiptast á skoðunum, miðla reynslu og hafa áhrif á það sem fram undan er í hestaíþróttinni og að þessu sinni mæta nítján Sprettarar sem fulltrúar fyrir Sprett.
Á vefsíðu LH má finna upplýsingar um þingtillögur sem hestamenn geta kynnt sér og er Spretturum velkomið að senda ábendingar á sprettur(hja) sprettur.is í tengslum við tillögurnar.
Á þinginu verður kosið í stjórn LH og að þessu sinni eiga Sprettarar 2 flotta fulltrúa í framboði, Lindu Björk Gunnlaugsdóttur sem býður sig aftur fram til formanns og Sigurbjörn Eiríksson sem hefur setið í varastjórn LH.
Við óskum þeim góðs gengis!
